blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

7.13.2004

Vestfirðir beibí!

Landslagsbreytingin sem á sér stað er svo stórkostleg að maður upplifir hana sem heillun. Upplifunin er svo margþætt, hún er falleg, drúngaleg, leyndardómsfull og fær hjartað til að tikka hraðar. Ferðin hófst í raun ekki fyrr en farið var framhjá Bjarkarlundi þá var ég að sjá allt í fyrsta skipti. Vatnsfjörður er nátturuundur, þangað verð ég að fara aftur og hæka hvern hól auk þess að fara á kayak út á fjörðin! ég get rétt imyndað mér hvað það er töff. Svo eru það heiðarnar sem maður fer yfir, maður fer svo hátt að maður fær hellur og þakkar fyrir í hvert skipti að það er sumar en ekki vetur með tilheyrandi svelli! Nýttum okkur merkta útsynisstaði, sem er fullt af, til að fá okkur að borða og teygja úr okkur. Dýrið var ekkert ánægð með að vera með nesti og kvartaði stöðugt yfir að fá ekki sjoppufæði :) Stefnan var tekin á bændagistinguna í Breiðuvík sem er rétt hjá Bjargtöngum. Þetta er gamall heimavistarskóli fyrir vandræða börn og unglinga að sunnan. Vegurinn liggur meðfram hvítum ströndum og þverhníftum töngunum og ég verð að viðurkenna að keyra þessa leið í svartri þoku fékk hjartað mitt til að slá hratt. Það er skemmtileg tilfining að finna að maður er á hjara veraldar og er eitt spurningarmerki þegar maður keyrir fram hjá þessum býlum sem eru þarna, óneytanlega ber maður virðingu fyrir því fólki sem þarna býr!. Merkilegt nokk er safn sem er þarna. Safn Egills Ólafssonar. Þar er að sjá hvernig menn lifðu af á þessu svæði fyrr á tímum, saga sem er stórmerkileg og og skemmtilegt að segja frá því þá er líka flugvéla safn þarna!! Þetta er rosaleg flott safn, flott uppsett og margt merkilegt að sjá.
Það hefur orðið mikil fólksfækkun í litlu þorpunum og það er vel merkjanlegt. Það eru rosalega mörg hús sem standa auð og yfirgefin, sérstaklega var þetta áberandi á Patreksfirði og Bíldudal! En önnur þorp virðast blómstra þrátt fyrir allt. Það er satt hjá lilla að það er búið að loka okkar pöbb á Ísafirði en það stoppaði mig nu ekki í að drekka einn bjór eða tvo svona sem reunion þegar komið var á Ísafjörð. Bærinn hefur stækkað helling frá því við vorum þarna og er bara meira sjarmerandi nú en þá! Sem sagt ljómandi ferð í alla staði sem stækkaði sjóndeildarhring minn, þroskaði þolimæði mína til muna sé hugsað til ferðafélaga og plássleysis og vakti óendalega ánægju!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home